Lokkmosaætt

Lækjalokkur

Brachytheciaceae

Lækjalokkur (Brachythecium rivulare) er algengur mosi um allt land.  Hann er breytilegur í útliti, oft stórvaxinn.  Hann vex mest á rökum klettum, eða á steinum í ám og lækjum. Oft er hann einnig á lækjabökkum og við lindir og dý. Hann ber sérlega bjartan, ljósgrænan lit eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

BRACRIVU1M.JPG (152106 bytes)

bracrivu2m.jpg (134118 bytes)

bracrivu3m.jpg (74164 bytes)

Myndin af lækjalokk hér að ofan er tekin í Flekkudal í Kjós 1. ágúst 1987

Miðmyndin sýnir vaxtarstað lækjalokks í litlum lindalæk í Barmahrauni í Reykhólasveit. Hún er tekin 6. júlí 2005.

Þessi mynd af lækjalokk er tekin í sama skipti og sama stað og miðmyndin.