|
Gorkúla
(Merarostur eða Kerlingareldur) (Bovista nigrescens) er mjög algengur sveppur og vex í
graslendi eða móum, oft í nágrenni býla. Hann myndar í fyrstu
snjóhvítar kúlur, sem eru hvítar í gegn, og á því stigi ágætir
matsveppir (merarostur). T.d. má sneiða kúlurnar niður og
steikja á pönnu. Þegar lengra líður á verða kúlurnar grænar að
innan og slorkenndar (gorkúlur). Á því stigi eru þær ekki
lengur ætar. Að lokum þroskast mikill gróvefur inni í kúlunum, þær
dökkna og verða dökkbrúnar að utan sem innan. Í toppinn myndast op,
og ef komið er við þær rýkur út brúnn gróreykur (Kerlingareldur). Börnum var
áður sagt að þau gætu orðið blind ef þau fengju þennan gróreyk
í augun. Víst er að ekki er gott að fá gróin í augun, því út úr
þeim stendur gaddur eða hali, sem auðveldlega má sjá í smásjá. |