Dagur  hinna  villtu  blóma  2011

Til baka 

            

19. júní  2011  

 

Bláklukkulyng

 

Sólblóm

    

Dagur hinna villtu blóma var haldinn sunnudaginn 19. júní árið 2011. Þann dag gafst fólki víðs vegar um landið kostur á að fara í tveggja tíma gönguferð um nágrenni sitt án endurgjalds, og fá leiðsögn um algengustu plöntur sem þar vaxa. Í þetta sinn mættu 134 gestir í 17 skoðunarferðum. Kuldi við norðurströndina og sums staðar súld mun hafa dregið úr þátttöku. Árið 2010 voru alls 211 gestir í 16 skoðunarferðum. Neðst á þessari síðu er tengill inn á síður fyrri blómadaga, allt frá árinu 2004 þegar hann var fyrst haldinn hér á Íslandi. Árið 2012 ber Dag hinna villtu blóma upp á 17. júní.

 

Árið 2011 voru ferðir skipulagðar sem hér segir:

1. Laugarás, Reykjavík: Mæting á Laugatungutorgi við aðalinngang Grasagarðsins í Laugardal kl. 11:00. Gengið upp á Laugarás, þar sem gróðurfar er fjölbreytt. Fjallað um gróður svæðisins og plöntur greindar. Leiðsögn: Hjörtur Þorbjörnsson. Fjöldi gesta: 31.

2. Grafarvogur, Reykjavík: Mæting á bílastæðinu við Eiðið út að Geldinganesi kl. 13:30. Leiðsögn: Ríkharð Brynjólfsson. Fjöldi gesta: 6.

3. Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull: Mæting á Búðum kl. 14:00. Leiðbeinandi: Hákon Ásgeirsson, landvörður og náttúrufræðingur. Fjöldi gesta: 8.

4. Snæfellsnes: Mæting við Klofningsrétt sunnan Burstahrauns kl. 9:30. Leiðsögn: Skúli Alexandersson. Fjöldi gesta: 5.

5. Snæfellsnes: Mæting í Skarðsvík norðan Neshrauns kl. 13:30. Leiðsögn: Skúli Alexandersson. Fjöldi gesta: 5.

6. Fagridalur, Skarðsströnd. Mæting við Ytri Fagradal kl. 16:00. Gengið niður túnin að ströndinni, og eftir henni áleiðis til Nýpur og síðan upp Nýpurtúnin og lýkur göngunni að Nýp. Leiðsögn: Þóra Sigurðardóttir og Halla Steinólfsdóttir. Fjöldi gesta: 7.

7. Hólmavík: Mæting við flugstöðina á Hólmavík kl. 10:30. Gengið um Kálfanesland og yfir í Stakkamýri. Leiðsögn: Hafdís Sturlaugsdóttir. Fjöldi gesta: 1.

8. Dalvík, Náttúrustöðin á Húsabakka: Mæting við Olís á Dalvík kl. 13:00. Gengið um Hrísahöfða. Leiðsögn: Hjörleifur Hjartarson. Fjöldi gesta: 1.

9. Krossanesborgir, Akureyri.  Mæting við nýja bílastæðið norðan við BYKO  kl. 10:00. Gott að hafa stígvél meðferðis fyrir þá sem vilja skoða mýragróðurinn. Leiðsögn: Elín Gunnlaugsdóttir, grasafræðingur. Fjöldi gesta: 4

10. Fosshóll við Skjálfandafljót. Mæting við verslunina á Fosshóli kl. 10:00. Leiðsögn: Hörður Kristinsson, grasafræðingur. Fjöldi gesta: 12

11. Vatnajökulsþjóðgarður í Ásbyrgi. Mæting við Gljúfrastofu kl. 14:00. Leiðsögn: Guðrún Jónsdóttir, landvörður. Fjöldi gesta: 0.

12. Egilsstaðir - Fellabær. Mæting við þjóðveg 931 rétt utan við Ekkjufell kl. 10:00. Gengið um klettasvæðið, niður að Lagarfljóti og út með því, síðan hringinn til baka. Leiðsögn: Vigfús Ingvar Ingvarsson. Fjöldi gesta: 0

13. Fjarðabyggð. Hólmanes, Fólkvangur - Friðland. Mæting við útskotið á Hólmahálsi kl. 11:00. Gengið um Hólmanesið, en þar er fjölbreytt gróðurlendi og mikil tegundafjölbreytni. Leiðsögn: Líneik Anna Sævarsdóttir og Erlín Emma Jóhannsdóttir. Fjöldi gesta: 20.

14. Vatnajökulsþjóðgarður í Skaftafelli. Mæting við Skaftafellsstofu kl. 13:50. Leiðsögn: Regína Hreinsdóttir. Fjöldi gesta: 9.

15. Sólheimar í Grímsnesi. Mæting við Sesseljuhús - umhverfissetur á Sólheimum kl. 15:00. Leiðsögn Valgeir Bjarnason. Fjöldi gesta: 18.

 

Auk þessara 15 skoðunarferða sem auglýstar voru, stóð Kristjana Einarsdóttir fyrir göngu á Ísafirði og Helga Davids í Dímu í Lóni. Á Ísafirði mættu 5 gestir í gönguna og í Lóni 2.

 

Samtals mættu því  134 í öllum göngunum 17.

 

Flóruvinir standa fyrir degi hinna villtu blóma, og veita leiðsögn sem sjálfboðaliðar. Ýmsar stofnanir hafa stutt og staðið  með flóruvinum að þessum degi á hverjum stað fyrir sig, meðal annarra Grasagarðurinn í Laugardal, Ferðafélag Íslands, Ferðafélagið Útivist, Hólaskóli, Landbúnaðarháskóli Íslands, Náttúrufræðistofa Kópavogs, Náttúrusetrið á Húsabakka,  Náttúrufræðistofnun Íslands, Náttúrufræðistofur landshlutanna og Umhverfisstofnun.

 

Flóruvinir og aðrir sem eru reiðubúnir til að standa fyrir plöntuskoðunarferð á blómadaginn eru hér með beðnir að láta vita á póstfangið hkris@nett.is sem fyrst, og endilega fyrir 15. maí næstkomandi. Taka þarf fram hvar fólk á að mæta, og á hvaða tíma dagsins 19. júní.

Gjarnan mættu einnig fylgja með upplýsingar um hvað markverðast er að sjá á því svæði sem skoðað verður. Upplýsingum verður safnað saman hér á vefsíðuna eins og gert hefur verið síðastliðin ár.

 

Dagur hinna villtu blóma hefur síðan 2004, þegar Íslendingar bættust í hópinn,  verið haldinn á öllum Norðurlöndunum ásamt Færeyjum og Grænlandi.

 

Blómadagarnir 2004-2010