Dagur  hinna villtu  blóma

  Á árum áður

 

 Til baka                                

 

Árið 2009 voru plöntuskoðunarferðir á eftirtöldum stöðum:

1. Hrafnagjá í Vogum. Mæting við mislægu gatnamótin á Reykjanesbraut við Voga kl. 11:00. Þaðan er gengið í um það bil 20 mínútur að Hrafnagjá. Þar er skjól í norðanátt og sólríkt. Leiðbeinendur verða Þorvaldur Örn Árnason og Ragnheiður E. Jónsdóttir. Fjöldi gesta: 15.

2. Búrfellsgjá. Mæting og brottför frá Grasagarðinum í Laugardal kl. 9:30. Plöntuskoðun í Búrfellsgjá í samvinnu við Grasagarðinn í Laugardal og Ferðafélagið Útivist. Leiðsögn: Eva G. Þorvaldsdóttir, grasafræðingur. Fjöldi gesta: 25.

3. Snæfellsnesþjóðgarður. Mæting við Rauðhól kl. 14:00. Leiðbeinandi Hákon Ásgeirsson. Fjöldi gesta: 1.

4. Ísafjörður. Mæting við tjaldstæðið í Tunguskógi kl. 14:00. Leiðsögn: Kristjana Einarsdóttir. Fjöldi gesta: 4.

5. Hólmavík. Mæting við Upplýsingamiðstöðina kl. 10:30. Leiðsögn: Hafdís Sturlaugsdóttir og Matthías Lýðsson. Fjöldi gesta: 2.

6. Krossanesborgir, Akureyri.  Mæting við nýja bílastæðið norðan við BYKO  kl. 10:00. Gott að hafa stígvél meðferðis fyrir þá sem vilja skoða mýragróðurinn. Leiðsögn: Elín Gunnlaugsdóttir, grasafræðingur. Fjöldi gesta: 15, þar af 5 börn.

7. Eyjafjarðarsveit, Stóragil við Eyrarland. Mæting norðan við afleggjarann að Eyrarlandi af gamla Vaðlaheiðarveginum kl. 10:00. Verður eggtvíblaðkan farin að blómstra?  Leiðsögn: Hörður Kristinsson, grasafræðingur. Fjöldi gesta: 11, þar af 3 börn.

8. Húsavík. Mæting við fjallsrætur vestan Botnsvatns kl. 14:00. Gengið verður umhverfis vatnið. Leiðsögn: Óskar Jóhannsson. Fjöldi gesta 12, þar af 3 börn.

9. Þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfrum. Mæting við Gljúfrastofu kl. 14:00. Leiðsögn: Jóna Óladóttir, landvörður og Helga Árnadóttir, líffræðingur. Fjöldi gesta 7.

10. Egilsstaðir. Mæting á gatnamótum Seyðisfjarðarvegar og Fagradalsbrautar kl. 9:30. Gengið verður um Egilsstaðaskóg innan vegar og blæöspin skoðuð. Síðan gengið að Löngutjörn, inn fyrir hana, út Hamra og endað við útsýnisskífu undir hádegi. Leiðsögn: Skarphéðinn Þórisson. Fjöldi gesta 13.

11. Neskaupstaður. Mæting á bílastæðinu úti í fólkvangi hjá vitanum kl. 10:00. Í fólkvanginum er mikil fjölbreytni tegunda og gróðurlendi víða gróskumikil. Einkennisjurtir Austfjarða, sjöstjarna, gullsteinbrjótur, maríuvöttur og bláklukka vaxa þar allar. Í ferðinni verður einnig litið eftir sjaldséðum tegundum eins og þúsundblaðrós, hagastör, skógfjólu og lyngbúa. Leiðsögn: Erlín Emma Jóhannsdóttir og Gerður Guðmundsdóttir. Fjöldi gesta 16, þar af 5 börn.

12. Fáskrúðsfjörður. Mæting við Hólagerði kl. 19:00. Leiðsögn: Líneik Anna Sævarsdóttir. Fjöldi gesta 12.

13. Hornafjörður. Mæting í landi Skógræktarfélagsins í Haukafelli kl. 13:00. Leiðsögn: Rannveig Einarsdóttir. Fjöldi gesta: 1.

14. Þjóðgarðurinn í Skaftafelli. Mæting við Þjónustumiðstöðina í Skaftafelli kl. 13:00. Leiðsögn: Hálfdán Björnsson frá Kvískerjum. Fjöldi gesta: 15.

15. Kirkjubæjarklaustur. Mæting hjá Kirkjubæjarstofu við Systrafoss kl. 20:30. Gengið verður að Systrastapa og áfram í Tóluhvamm vestan Systrastapa. Leiðsögn: Valgerður Erlingsdóttir. Fjöldi gesta: 3.

 

Heildarþátttaka 2009:

Hrafnagjá 15
Búrfellsgjá 25
Snæfellsnesþjóðgarður 1
Ísafjörður 4
Hólmavík 2
Krossanesborgir 15
Eyjafjarðarsveit 11
Húsavík 12
Jökulsárgljúfur 7
Egilsstaðir 13
Neskaupstaður 16
Fáskrúðsfjörður 12
Hornafjörður 1
Skaftafell 15
Kirkjubæjarklaustur 3
Samtals: 152

 

 

Dagur hinna villtu blóma var haldinn sunnudaginn 15. júní árið 2008. Þann dag gafst fólki víðs vegar um landið kostur á að fara í tveggja tíma gönguferð um nágrenni sitt án endurgjalds, og fá leiðsögn um algengustu plöntur sem þar vaxa. Hér fyrir neðan má skoða árangur á Degi hinna villtu blóma allt aftur til 2004. Þar er hægt að sjá hvar efnt hefur verið til blómaskoðunar á fyrri árum, og hver þátttakan var á hverju ári fyrir sig.

 

Árið 2008 voru plöntuskoðunarferðir á eftirtöldum stöðum:

 

1. Vogar. Mæting við Vogatjörn kl. 11. Leiðsögn: Þorvaldur Örn Árnason og Ragnheiður Elísabet Jónsdóttir. Ef ekið er Vogaafleggjarann niður í Voga án þess að taka beygju, er komið að Vogatjörn. Lítt röskuð náttúruperla á náttúruminjaskrá í hjarta þéttbýlisins. Villtur gróður er á bakkanum á þrjá vegu og ýmislegt er úti í tjörninni, gott að vera á stígvélum. Valllendi í grennd og reskigróður, stutt í strandgróðurinn. Fjöldi gesta: 19.

2.  Reykjavík. Elliðaárdalur.  Mæting við gamla Rafveituhúsið kl. 13:30. Leiðsögn: Gróa Valgerður Ingimundardóttir. Fjöldi gesta: 21.

3.  Borgarfjörður. Mæting við Hvanneyrarkirkju kl. 10:00. Leiðsögn: Björn Þorsteinsson. Fjöldi gesta: 9.

4.  Hnappadalur. Gengið að Eldborg, mæting við göngumerkið við brúna á Snorrastöðum kl. 14:00. Leiðsögn: Ásta Davíðsdóttir, landvörður í Borgarfjarðarbyggð. Fjöldi gesta: 1.

5.  Snæfellsnesþjóðgarður. Mæting við Rauðhól (suðaustan við Prestahraun og upp með Móðulæk) kl. 14:00. Leiðsögn: Guðrún Lára Pálmadóttir. Fjöldi gesta: 4.

6.  Ísafjörður. Mæting á tjaldstæðinu í Tungudal kl. 13:00. Leiðsögn: Anton Helgason. Fjöldi gesta: 1.

7.  Hólmavík. Mæting á Upplýsingamiðstöðinni á Hólmavík kl. 13:00. Leiðsögn: Hafdís Sturlaugsdóttir og Matthías Lýðsson. Gengið var um Borgirnar fyrir ofan Hólmavík í tvo tíma í blíðskaparveðri, hægviðri og aðeins súld á milli. Áttum góðan dag saman þar sem mikið var rætt um lúpínuna sem dreifir sér æ meira um Borgirnar.  Fjöldi gesta: 3.

8.  Akureyri. Krossanesborgir, mæting á bílastæðinu við Lónið kl. 10:00. Leiðsögn: Elín Gunnlaugsdóttir. Fjöldi gesta: 10.

9.  Eyjafjarðarsveit. Leifsstaðabrúnir norðan Kaupangs. Mæting kl. 10:00 á bílastæði við gamla Vaðlaheiðarveg rétt sunnan vegamóta Leifsstaðavegar og Eyrarlands. Leiðsögn: Hörður Kristinsson. Gengið um Leifsstaðabrúnirnar. Maríulykillinn var enn í blóma, en byrjaður að fölna.  Fjöldi gesta: 15.

10.Ásbyrgi. Mæting við Gljúfrastofu kl. 14:00. Gönguferð um Ásbyrgi skipulögð af Þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum í samvinnu við Náttúrustofu Norðausturlands og Flóruvini. Leiðsögn: Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir. Fjöldi gesta: 4.

11.Egilsstaðir, Fljótsdalshéraði. Mæting á bílastæðinu við Selskóg á Egilsstöðum kl. 10:00. Leiðsögn: Skarphéðinn Þórisson. 17 manns mættu þ.a. 2 börn. Gengið var upp með Eyvindará, yfir Hálslæk að 8 m háu tvístofna reynitré norðaustan í Prestakershöfða og þaðan 2-300 m í vestur hvar ferlaufungur var skoðaður í skógarbotninum. Þaðan styðstu leið á þjóðveg og bíla. Á leiðinni bent á hvar auðveldast væri að fara og skoða blæöspina í Egilsstaðaskógi. Fjöldi gesta: 17.

12.Hjaltastaðarþinghá, Fljótsdalshéraði. Mæting á Unaósi kl. 14:00. Leiðsögn: Þorsteinn Bergsson og Soffía Ingvarsdóttir. Gengið út með Selfljóti að Eiðaveri, skoðuðum súrsmæru sem er í blóma um þetta leyti og auðvitað fleira sem varð á vegi okkar, mjög ánægjuleg ferð í góðu veðri. Fjöldi gesta: 4.

13.Neskaupstaður. Mæting á bílaplaninu úti í Fólkvangi, hjá vitanum kl. 10:00.  Leiðsögn: Guðrún Á. Jónsdóttir. Gengið var sem leið liggur um fólkvang Neskaupstaðar um Haga, Urðir og áleiðis upp í Skálasnið þar sem þúsundblaðarós vex í brekkum.  Leitað var að lyngbúa í brekkunum en hann fannst ekki að þessu sinni.  Fjöldi gesta: 9.

14.Fáskrúðsfjörður. Mæting á tjaldstæðinu á Fáskrúðsfirði kl. 19:00. Leiðsögn: Líneik Anna Sævarsdóttir. Það komu 11 fullorðnir og 8 börn og plöntuskoðunin var hin ánægjulegasta. Fjöldi gesta: 19. 

15.Kirkjubæjarklaustur. Mæting við Skaftárskála kl. 20:30. Gengið suður með Skaftá í átt að Heimsendaskeri. 

     Leiðsögn: Ólafía Jakobsdóttir og Sigurlaug Jónsdóttir. Fjöldi gesta: 8.

 

Heildarfjöldi gesta er 144, fleiri en nokkurn tíma áður (flestir 124 árið 2005).

 

 

Dagur hinna villtu blóma var haldinn sunnudaginn 17. júní árið 2007 á eftirtöldum stöðum: 

 

1.  Reykjavík 1. Elliðaárdalur.  Mæting við gamla Rafveituhúsið kl. 13:00. Leiðsögn: Gróa Valgerður Ingimundardóttir. Fjöldi gesta: 12

2.  Reykjavík 2. Elliðaárdalur. Mæting við gamla Rafveituhúsið kl. 16:00. Leiðsögn: Snorri Sigurðsson og Margrét Björk Sigurðardóttir. Fjöldi gesta: 1

3.  Kópavogur, Borgarholt. Mæting við Kópavogskirkju kl. 15:00. Leiðsögn: Karólína Einarsdóttir og Bryndís Marteinsdóttir. Fjöldi gesta: 2

4.  Hvanneyri. Mæting við kirkjuna á Hvanneyri kl. 10:00. Leiðsögn: Björn Þorsteinsson og Anna Guðrún Þórhallsdóttir. Fjöldi gesta: 8

5.  Ísafjörður. Mæting við tjaldstæðið í Tungudal kl. 17:00. Leiðsögn: Anton Helgason. Fjöldi gesta: 9

6.  Hólmavík. Mæting á Sauðfjársetrinu í Sævangi (10 km sunnan Hólmavíkur) kl. 11:00. Áherzla á plöntur í og við fjöruna. Leiðsögn: Hafdís Sturlaugsdóttir og Matthías Lýðsson. Fjöldi gesta: 5

7.  Sauðárkrókur. Mæting ofarlega í Sauðárgili að norðan kl. 10:00. Leiðsögn: Þórdís V. Bragadóttir. Fjöldi gesta: 10.

8.  Akureyri, Leifsstaðabrúnir í Eyjafjarðarsveit. Mæting kl. 10:00 sunnan Leiruvegar að austan, á bílastæði við gamla Vaðlaheiðarveg, beint niður af Vaðlaþingi, rétt sunnan vegamóta Leifsstaðavegar og Eyrarlands. Leiðsögn: Hörður Kristinsson. Maríulykillinn skoðaður. Fjöldi gesta: 10

9.  Ásbyrgi. Mæting kl. 20:00 að kvöldi við Gljúfrastofu. Leiðsögn: Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir, þjóðgarðsvörður. Fjöldi gesta: 4

10.  Neskaupstaður. Mæting við Friðlandið í Neskaupstað kl. 11:00. Leiðsögn: Starfslið Náttúrustofu Austurlands. Fjöldi gesta: 10

11.  Hornafjörður. Mæting við tjaldstæðið á Höfn í Hornafirði kl. 10:00. Leiðsögn: Rannveig Einarsdóttir eða Brynjúlfur Brynjólfsson. Fjöldi gesta: 9

12.  Skaftafell. Mæting við Þjónustumiðstöðina á Skaftafelli kl. 10:00.  Leiðsögn: Hálfdán Björnsson, Kvískerjum. Fjöldi gesta: 9

13.  Kirkjubæjarklaustur. Mæting við Systrafoss kl. 20:00. Gengið um skóginn. Leiðsögn: Ólafía Jakobsdóttir. Fjöldi gesta: 1

14.  Flóinn. Mæting kl. 20:00 að kvöldi heima á Vatnsenda í Flóahreppi (fyrrum Villingaholtshreppi). Leiðsögn: Þórunn Kristjánsdóttir og Krístín Stefánsdóttir. Fjöldi gesta: 8

 

Heildarfjöldi gesta árið 2007 samtals 98.

 

Dagur hinna villtu blóma var haldinn sunnudaginn 18. júní árið 2006 á eftirtöldum stöðum: 

 

1. Reykjavík, Undirhlíðar í Reykjanesfólkvangi.  Brottför með rútu frá Ferðafélagi Íslands Mörkinni 6, kl. 10:00 og ekið að Undirhlíðum til plöntuskoðunar. Á eftur verður farið í Grasagarðinn í Laugardal, sem stendur að plöntuskoðuninni ásamt Ferðafélagi Íslands. Ferðalok um kl. 14:00. Leiðsögn: Eva G. Þorvaldsdóttir. Fjöldi gesta 7.

2. Hvanneyri. Mæting við Hvanneyrarkirkju kl. 13:00. Leiðsögn: Björn Þorsteinsson og Anna Guðrún Þórhallsdóttir. Fjöldi gesta 10.

3. Ísafjörður. Mæting á tjaldstæðinu í Tungudal kl. 13:00. Leiðsögn: Helga Friðriksdóttir. Fjöldi gesta 5.

4. Hólmavík. Mæting á Upplýsingamiðstöð ferðamála við tjaldsvæðið kl. 13:00. Leiðsögn: Hafdís Sturlaugsdóttir og Matthías Lýðsson. Fjöldi gesta 2.

5. Skagafjörður. Mæting við íþróttahúsið á Sauðárkróki kl. 16:00. Leiðsögn: Gróa Valgerður Ingimundardóttir. Fjöldi gesta 12.

6. Siglufjörður. Mæting við Siglufjarðarkirkju kl. 13:00. Leiðsögn: Sigurður Ægisson. Fjöldi gesta 4.

7. Dalvík, Hrísahöfði. Mæting við afleggjarann upp á Hrísahöfða kl.16:00. Leiðsögn: Þórir Haraldsson. Fjöldi gesta 16.

8. Akureyri, Krossanesborgir. Mæting við bílastæðið sunnan Lónsbakka austan Hörgárbrautar kl. 10:00. Leiðsögn: Elín Gunnlaugsdóttir. Fjöldi gesta 20. 

9. Mývatnssveit. Mæting á bílastæði göngustígs inni á afleggjara að Kálfaströnd kl. 10:00. Leiðsögn: Hörður Kristinsson. Fjöldi gesta 4. 

10. Fljótsdalshérað, Unaós. Mæting á Unaósi á bílastæðinu við upphaf gönguleiðarinnar í Stapavík kl. 14:00. Leiðsögn: Þorsteinn Bergsson og Soffía Ingvarsdóttir. Fjöldi gesta 4. 

11. Neskaupstaður. Mæting á bílaplaninu úti í Fólkvangi (hjá vitanum) kl. 10:00. Leiðsögn: Guðrún Á. Jónsdóttir. Fjöldi gesta 1.

12. Höfn í Hornafirði, Óslandið. Mæting við Gistiheimilið Ásgarð kl. 13:30. Leiðsögn: Brynjúlfur Brynjólfsson, gengið verður um Óslandið. Enginn gestur mætti á svæðið.

13. Skaftafell í Öræfum. Mæting við Þjónustumiðstöðina í Skaftafelli kl. 14:00. Leiðsögn: Hálfdán Björnsson. Fjöldi gesta 12.

14. Stjórnarsandur austan Kirkjubæjarklausturs. Mæting við hliðið hjá skilti Skógræktarfélagsins Markar kl. 20:30. Leiðbeinendur: Ólafía Jakobsdóttir og Sigurlaug Jónsdóttir. Fjöldi gesta 7.

 

Þátttaka í Degi hinna villtu blóma 2006 voru samtals 104 gestir.

 

Þann 19. júní 2005 voru plöntuskoðunarferðir skipulagðar á degi hinna villtu blóma á eftirtöldum 18 stöðum:

1. Sandgerði. Mæting við Háabjalla (afleggjari 1/2 km austan við Grindavíkurveg) kl. 14:00. Skoðað verður svæðið við Háabjalla og Snorrastaðatjarnir. Leiðsögn: Þorvaldur Örn o.fl. Hlýtt en smáskúrir, fjöldi gesta 20.

2. Reykjavík, Laugarás. Mæting við Áskirkju kl. 13:00. Leiðsögn: Eva G. Þorvaldsdóttir. Skúrir, fremur kalt, fjöldi gesta 14.

3. Reykjavík, Grasagarðurinn í Laugardal. Mæting í Laugardal kl. 15:00. Flóra Íslands í Grasagarðinum, íslenskt jurtate í boði. Leiðsögn: Eva G. Þorvaldsdóttir. Skúrir, fremur kalt. Fjöldi gesta 19.

4. Kópavogur, Borgarholt. Mæting við Kópavogskirkju kl. 13:00. Leiðsögn: Kristbjörn Egilsson og Guðmundur Guðjónsson. Hlýtt, skýjað en þurrt veður, fjöldi gesta 12.

5. Hvanneyri. Mæting við Rannsóknahús Landbúnaðarháskóla Íslands, Hvanneyri kl. 14:00. Leiðsögn Anna Guðrún Þórhallsdóttir og Björn Þorsteinsson. Fjöldi gesta 2.

6. Bolungarvík. Mæting við Stigahlíð kl. 16:00. Farið verður upp í Bólin. Leiðsögn: Anton Helgason. Norðankaldi, fjöldi gesta 5.

7. Ísafjörður. Mæting við tjaldsvæðið í Tungudal kl. 13:00. Leiðsögn: Anton Helgason. Norðankaldi, fjöldi gesta 1.

8. Hólmavík. Mæting við Upplýsingamiðstöðina á Hólmavík (við tjaldsvæðið) kl. 19:30. Farið verður um Borgirnar á Hólmavík. Leiðsögn Matthías Sævar Lýðsson. Norðaustankaldi en þurrt, fjöldi gesta 6.

9. Skagafjörður. Mæting í anddyri Hólaskóla, Hólum í Hjaltadal kl.14:00. Gengið um Skógræktina á Hólum, skoðaður bæði votlendis- og þurrlendisgróður. Leiðsögn: Valgeir Bjarnason. Hægviðri og þurrt, fjöldi gesta 1.

10. Dalvík. Mæting við afleggjarann upp á Hrísahöfða kl. 16:00. Leiðsögn: Þórir Haraldsson. Kalsaveður, fjöldi gesta 12.

11. Akureyri, Krossanesborgir. Mæting við bílastæðið sunnan Lónsbakka austan Hörgárbrautar kl. 10:00. Leiðsögn: Elín Gunnlaugsdóttir. Úrhellisrigning, mætti ekki sála.

12. Eyjafjarðarsveit, Hrafnagil. Mæting við félagsheimilið Laugarborg kl. 13:00. Gengið verður upp með Reyká. Leiðsögn: Hörður Kristinsson. Þurrt og stillt veður, fjöldi gesta: 8.

13. Húsavík. Mæting við Botnsvatn kl. 14:00. Leiðsögn: Gróa Valgerður Ingimundardóttir. Fremur kalt en þurrt, fjöldi gesta 14. 

14. Egilsstaðir. Mæting við hringsjána á Hömrum kl. 18:00. Leiðsögn: Þorsteinn Bergsson og Soffía Ingvarsdóttir á Unaósi.

15. Neskaupstaður. Mæting á bílaplaninu úti í Fólkvangi (hjá vitanum) kl. 10:00. Leiðsögn: Erlín Emma Jóhannsdóttir. Úrhellisrigning, enginn mætti.

16. Skaftafell í Öræfum. Mæting við þjónustumiðstöðina á Skaftafelli kl. 14:00. Leiðsögn: Hálfdán Björnsson. Skínandi veður, fjöldi gesta: 5.

17. Kirkjubæjarklaustur. Mæling við félagsheimilið Kirkjuhvol kl. 20:30. Leiðsögn: Ólafía Jakobsdóttir. Hellirigning, fjöldi gesta 2.

18. Vatnsendi í Flóa. Mæting við Vatnsenda í Villingaholtshreppi kl. 16:00. Leiðsögn: Þórunn Kristjánsdóttir og Kristín Stefánsdóttir. Hlýtt og þurrt veður, fjöldi gesta 3.

 

Heildarfjöldi gesta árið 2005 voru 124.

 

Þann 13. júní árið 2004 voru skoðunarferðir á eftirtöldum 9 stöðum á Íslandi:

1. Suðurnes:  Mæting við Háabjalla (næsti afleggjari við Grindavíkurveg) kl. 15.00. Skoðunarsvæði: Háibjalli, Snorrastaðatjarnir. Leiðsögn: Þorvaldur Örn, Sveinn Kári, Linda Björk o.fl. 

2. Hvanneyri: Mæting við Rannsóknahús Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri kl. 14.00.     Skoðunarsvæði: Klapparásar og mýrar suður af Heimavist Landbúnaðarháskólans. Leiðsögn: Björn Þorsteinsson og Anna Guðrún Þórhallsdóttir.

3. Bolungarvík: Mæting á planinu fyrir ofan Þjóðólfstungu kl. 16.00. Skoðunarsvæði: Tungudalur. Leiðsögn: Anton Helgason.

4. Ísafjörður: Mæting á tjaldsvæðinu í Tungudal kl. 13.00. Skoðunarsvæði: Tungudalur. Leiðsögn: Anton Helgason.

5. Hólmavík: Mæting við félagsheimilið á Sævangi, Hólmavíkurhreppi kl. 14.00. Skoðunarsvæði: Næsta nágrenni. Leiðsögn: Matthías Lýðsson og Hafdís Sturlaugsdóttir.

6. Skagafjörður: Mæting í anddyri Hólaskóla, kl. 13.30. Skoðunarsvæði: Hólar í Hjaltadal. Leiðsögn: Valgeir Bjarnason.

7. Dalvík: Mæting við Dalvíkurkirkju kl. 10.00 fyrir hádegi. Skoðunarsvæði: Hólarnir ofan Dalvíkur. Leiðsögn: Þórir Haraldsson.

8. Akureyri: Mæting á bílastæði Friðlandsins í Krossanesborgum (skammt fyrir innan Húsasmiðjuna) kl. 10.00 fyrir hádegi. Skoðunarsvæði: Krossanesborgir. Leiðsögn: Hörður Kristinsson.

9. Egilsstaðir: Mæting á bílastæðinu við Selskóg kl. 20.00 að kvöldi. Leiðsögn: Þorsteinn Bergsson og Soffía Ingvarsdóttir.

 

Heildarfjöldi gesta árið 2004 voru 98.