Á
Íslandi eru nú skráđar um 452 tegundir villtra blómplantna. Ţá eru byrkningar
ekki međtaldir (ţeir eru ekki blómplöntur), og ekki rćktađar plöntur.
Slćđingar sem berast hingađ öđru hverju en hafa ekki náđ ađ nema land varanlega,
eru heldur ekki taldir međ.
Íslenzkum
blómplöntum má skipta í 3 flokka, tvíkímblöđunga, einkímblöđunga og
berfrćvinga. Til tvíkímblöđunga telst flest af ţeim plöntum sem viđ í daglegu
tali nefnum blóm, og til ţeirra telst meiri hluti ţeirra 452 tegunda sem áđur voru
nefndar, eđa alls um 303. Til einkímblöđunga teljast um 145 tegundir, en ţađ eru
einkum grös og starir auk nokkurra tegunda af lilju- og brönugrasaćtt. Ađeins ein
upprunalegra íslenskra tegunda, einirinn, er telst til berfrćvinga, en auk hans eru fáeinar
innfluttar tegundir, einkum lerki, sitkagreni og stafafura farnar ađ sá sér
sjálfkrafa
og mynda kjarr á örfáum stöđum, og vinna sér ţví smátt og smátt
ríkisborgararétt og ef ţćr eru taldar međ höfum viđ 4
berfrćvinga. Alls höfum viđ ţví 489 tegundir háplantna, og eru
ţá 37 byrkningar einnig taldir auk blómplantna. Lista yfir allar íslenzkar
blómplöntur og byrkninga til samans (háplöntur) má skođa međ ţví ađ fara til
baka á heimasíđuna, og velja plöntulista.
Ef
ţú vilt kynnast íslenzkum blómplöntum betur og skođa myndir af ţeim, ţá skaltu
smella á nafn ţeirra á listanum hér til vinstri. |