Skollakambsætt |
Skollakambur |
Blechnaceae |
||
Skollakambur (Blechnum spicant) er burkni sem er sjaldgæfur á Íslandi. Hann vex eingöngu á láglendum svæðum (mest neðan 200 m) þar sem snjóþyngsli eru mjög mikil. Til dæmis er hann með algengari burknum í Héðinsfirði. Hann vex einnig á Ólafsfirði, Siglufirði, í Fjörðum og sums staðar á Vestfjörðum. Gróbæru blöðin eru frábrugðin tillífunarblöðunum, þau standa upprétt og eru tindótt eins og tvíhliða kambur. Afbrigðið var. fallax, tunguskollakambur, er smávaxið jarðhitaafbrigði og á því eru gróbæru blöðin eins og hin blöðin. Þetta jarðhitaafbrigði er friðað. |
||||
|
Kortið hér að neðan sýnir útbreiðslu skollakambs á Íslandi. |
Myndin hér að ofan er tekin við Deildartunguhver í Borgarfirði, og sýnir tunguskollakamb. |
Myndin hér að ofan er tekin í Vattardal í Barðastrandasýslu árið 1985 og sýnir gróbæran skollakamb. Gróbæru blöðin mynda uppréttan kamb, en hin blöðin eru skástæð með breiðari flipa.. |
||
|
|
||||