Bjarkarætt

Ilmbjörk

Betulaceae

Ilmbjörk eða birki (Betula pubescens) er algengasta skógartréð á Íslandi.  Áður fyrr var það útbreitt um allt láglendi landsins og myndaði víða samfellda skóga. Víða nær birkið í dag upp í 400-450 m hæð í hlíðum, en hæst vex það í um 550 m eða ríflega það, t.d. í Stórahvammi efst í Austurdal,  í Fljótsgili við Skjálfandafljót og Hlíðarfjalli og Jörundi við Mývatn. Þar sem stormasamt er og mikið úthafsloftslag myndar það kjarr sem oft er aðeins 2-3 m hátt, en við meginlandsloftslag verður skógurinn hávaxnari, oft 5-10 m á láglendi.  Hér að neðan er mynd af birkigrein með uppréttum, rauðfræna kvenreklum. Karlreklarnir eru ljósari á litinn og hanga niður.

Myndirnar er teknar á Arnarhóli í Kaupangssveit árið 1963. Á myndinni til hægri er einn karlrekill auk kvenreklanna, en á myndinni til vinstri eru aðeins kvenreklar.

betulpub1b.jpg (36713 bytes)

betulpub2b.jpg (42680 bytes)

betulpub3b.jpg (141493 bytes) betulpub4b.jpg (118414 bytes) betulpub5b.jpg (99967 bytes)

Eins og sjá má á myndum birkibola hér að ofan, er litur þeirra afar breytilegur á íslenska birkinu. Hann getur verið dökkbrúnn, ljósbrúnn eða nær hvítur, og rauðbrúnn. Myndirnar eru teknar í Leifsstaðabrúnum í Eyjafirði af ræktuðu birki af mismunandi uppruna.

Útbreiðslukort birkisins sýnir áberandi eyðu í vestanverðri Húnavatnssýslu og sunnanverðri Strandasýslu. Svo mætti ætla að þessi eyða sé nokkuð gömul, því í fornsögum okkar eru vísbendingar um að víðiskógar hafi verið ríkjandi á þessu svæði (sbr. einnig nafnið Víðidalur), og birki hafi ekki verið áberandi fyrr en komið er austur í Vatnsdal.