Bjarkarætt

Fjalldrapi

Betulaceae

Fjalldrapi eða hrís (Betula nana) er lítill runni af bjarkarætt og er algengur um mest allt landið nema austan til á Suðurlandi. Hann vex mest frá láglendi upp í 700 m hæð, hæst fundinn í 850 m hæð í botni Bleiksmýrardals þar sem hann nær lengst inn í hálendið. Hann vex í lyngmóum og stundum í hálfdeigum mýrum. Hann þekkist á kringlóttum, gróftenntum, smáum blöðum.  Ekki ósjaldan myndar hann kynblendinga við birki sem hafa odd á blöðunum líkt og birki, en blöðin eru minni en á birkinu og runninn er oftast meir eða minna jarðlægur, enn rís þó verulega hærra en fjalldrapinn.  Kynblendingurinn heitir á íslenzku skógviðarbróðir.

Myndin fyrir miðju er tekin árið 1982.

Myndin til hægri er tekin í Leifsstaðabrúnum, 11. júní 2006, og sýnir hún blómstrandi kvenrekla..

betulnan1b.jpg (52529 bytes)

betulnan2b.jpg (116725 bytes)

Áberandi eyða er í útbreiðslu fjalldrapans á svæðinu frá Þjórsá austur að Skeiðará. Virðist hann vera sjaldgæfur á því svæði nema helzt langt inni í landi til fjalla.