Körfublómaættin

Fagurfífill

Asteraceae

Fagurfífill (Bellis perennis) er smávaxin fífiltegund, körfurnar minna ofurlítið á baldursbrá, en eru miklu minni. Gular pípukrónur eru í miðju körfunnar, en hvít eða ofurlítið bleikleit jaðarblóm umhverfis. Fagurfíflar eru mjög algengir í grasflötum víða í nágrannalöndum okkar, en hafa lítið náð að nema land á Íslandi, en eru ofurlítið ræktaðir til skrauts. Þeir hafa þó numið land á stöku stað í grasflötum í lóðum, t.d. í miðbæ Siglufjarðar, og einnig á Neskaupstað, Eskifirði og Reyðarfirði, svo og á fáeinum stöðum á Vestfjörðum og í Vestmannaeyjum.

Myndin af fagurfíflunum fyrir miðju er tekin í Árbæ í Reykhólasveit 19. júlí 2008, en sú til hægri er tekin í Þýzkalandi sumarið 2005.

belliper2b.jpg (146107 bytes)

belliper1b.jpg (101934 bytes)