Grímublómaætt |
Smjörgras |
Scrophulariaceae |
||
Smjörgras (Bartsia alpina) er algengt um allt land frá láglendi upp í 800-900 m hæð (hæst fundið í 1000 m á Skegguhrygg í Höfðahverfi). Það vex í grónum bollum, lækjagiljum, á grasbölum og í hlíðum til fjalla. |
||||
Myndin fyrir miðju er tekin í Leifsstaðabrúnum í Kaupangssveit árið 1994, en sú til hægri í Ólafsfjarðarmúla 10. júlí 2009. |
||||
|
|
||||