Hnappmosaætt |
Barðastrý |
Bartramiaceae |
||
Barðastrý (Bartramia ithyphylla) er mjög algengur mosi um allt landið. Það vex á jarðvegi í klettum, urðum og hraunum, eða utan í moldarborðum. Hann myndar stutta, upprétta, græna sprota, og hefur ljósgrænar, egglaga eða nær hnöttóttar gróhirzlur sem standa á rauðbrúnum stilkum. Á myndinni má einnig greina gamlar gróhirzlur frá fyrra ári, þær eru brúnar og djúprákóttar. |
||||
Myndin er tekin við Geirland á Síðu í maí 1987. |
||||