Mæruætt |
Torfmæra |
Baeomycetaceae |
||
Torfmæra (Baeomyces rufus) er grænleit hrúðurflétta með kornkenndri áferð, og vex hún nær alltaf á berum jarðvegi eða á torfi. Oft er hún landnemi utan í skurðbökkum, í gömlum plógförum, mýratorfi, utan í blásnum þúfum eða annars staðar þar sem opnur eru í jarðveginn. Torfmæran er algeng um allt landið. Stundum myndar hún ljósbrúnar askhirzlur á grænu þalinu. |
||||
Myndin er tekin í Hallormsstaðarskógi árið 1993 |
||||
|
|
||||