|
Dúnhafri
(Avenula pubescens) er hávaxin grastegund sem hefur borizt til
landsins á síðari árum. Fyrst var hans getið frá Höfða í
Höfðahverfi þar sem Helgi Jónasson frá Gvendarstöðum fann hann á
fyrri hluta síðustu aldar. Síðar hefur hann fundizt víðar, einkum er
hann að verða útbreiddur á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Smáöxin
á punti dúnhafrans hafa langar, oft knébeygðar títur eins og sést á
myndinni til hægri. |