Kollmosaætt |
Bústinkollur |
Aulacomniaceae |
||
|
Bústinkollur (Aulacomnium turgidum) ber fremur stutta og gilda, gulgræna eða ljósgræna laufsprota sem oft mynda nokkuð þéttar breiður. Blöðin upprétt, aðlæg, heilrend, bogadregin fyrir endann og kúpt. Vex ýmist á grónum holtum, tjarnarbökkum, áreyrum eða rökum sandi. Hefur ekki fundist með gróhirzlum hér á landi. Víða um land nema á austanverðu Norðurlandi, og sjaldséð á Suðurlandi. |
||||
|
Myndin af bústinkolli er tekin 28. júní 2005 Hafrárdalsmegin í Torfufelli í 900 m hæð yfir sjó. |
||||