Hélunjólaætt

Hrímblaðka

Chenopodiaceae

Hrímblaðka (Atriplex glabriuscula) vex eingöngu í sjávarfjörum, í sandi eða möl. Hún er algeng allt í kring um landið. Talið er að hér vaxi að minnsta kosti tvær tegundir af þessari ættkvísl, hrímblaðka og hélublaðka, en skilin milli þessara tegunda eru óglögg, og þekkjast þær tæplega nema á aldininum. Það er varla nema á færi sérfræðinga að greina þær sundur.

Myndin er tekin í fjöru í nágrenni Reykjavíkur árið 1982.

atriplon1b.jpg (114033 bytes)