Liðfætluætt

Þúsundblaðarós

Woodsiaceae

Þúsundblaðarós (Athyrium distentifolium) er burkni sem vex í snjódældum á snjóþyngstu láglendissvæðum landsins.  Hann er því bundinn við þá landshluta þar sem snjór liggur lengi. Það eru ákveðnir hlutar Vestfjarða, útsveitir beggja megin Eyjafjarðar, og nyrzt á Austfjörðum. Þúsundblaðarósin vex venjulega frá láglendi upp í um 400 m hæð, en hæstu fundarstaðir eru í 520 m í Siglufjarðarfjalli (Helgi Hallgrímsson) og 500 m í fjallinu ofan við Lund í Fljótum (H.Kr.).

Myndin af þúsundblaðarósarbreiðu fyrir miðju er tekin í Skútudal, Siglufirði 24. júní 1991

athyrdis1y.jpg (71721 bytes)

athyrdis2y.jpg (103098 bytes)

Þúsundblaðarósin endurspeglar snjóþyngstu svæði landsins. Heimildir eru þó um hann einnig frá þrem stöðum á Suðvesturlandi, en þær þarfnast staðfestingar, og eru sýndar með hringjum. Alls ekki er útilokað að hún komi eitthvað fyrir á því svæði einnig, einkum í djúpum sprungum, en einnig getur skýringin verið örðug aðgreining frá fjöllaufungi sem er nokkuð víða í þeim landshluta.