Klettburknaætt |
Klettaburkni |
Aspleniaceae |
||
|
Klettaburkni (Asplenium viride) er mjög smávaxinn burkni, með einfjaðraðar blöðkur. Miðstilkur blöðkunnar er grænn, og þekkist klettaburkninn á því frá svartburkna sem hefur svipaða blöðku með svörtum miðstreng. Klettaburkninn vex í klettasprungum, og hefur fundizt á fremur fáum stöðum á austanverðu landinu frá Höfuðreiðarmúla við Reykjaheiði í norðri til Fagurhólsmýrar í suðri. Hann er friðaður eins og allir íslenzkir burknar af ættkvíslinni Asplenium. |
||||
|
Myndirnar af klettaburkna eru teknar 27. júní 2002, sú fyrir miðju á Fagurhólsmýri, en sú til hægri í Kvískerjum |
||||
![]() |
||||