Klettburknaætt

Svartburkni

Aspleniaceae

Svartburkni (Asplenium trichomanes) er smávaxinn burkni með langar og mjóar, einfjaðraðar blöðkur. Smáblöðin eru egglaga og ofurlítið tennt. Miðstrengurinn er áberandi dökkbrúnn eða svartur, og þar af kemur nafnið. Burkninn líkist að öðruleyti klettaburkna, en blaðka hans hefur grænan miðstreng. Svartburkninn er afar sjaldgæfur, finnst aðeins á fjórum stöðum á landinu og er friðaður samkvæmt náttúruverndarlögum.

Myndin er tekin í Skaftafelli þann 27. júní árið 2002.

aspletri3y.jpg (63847 bytes)