Skorpuætt |
Randskorpa |
Hymeneliaceae |
||
|
Randskorpa (Aspicilia supertegens) er fremur sjaldgæf hrúðurflétta á Íslandi, og vex gjarnan á klöppum sem stundum flæðir yfir. Hún er ljósgrá á litinn með reitskiptu þali. Reitirnir mynda oft áberandi raðir hornrétt á jaðra fléttunnar. Askhirzlurnar eru smáar, dökkgráar eða svartar með upphleyptum börmum. |
||||
|
Myndin af randskorpu er tekin á Náttúrufræðistofnun á Akureyri þann 28. maí 2009 af sýni sem tekið var á klöppum við Lagarfoss. |
||||