Skorpuætt

Gráskorpa

Hymeneliaceae

Gráskorpa (Aspicilia cinerea) er ein af allra algengustu fléttum á Íslandi. Hana má finna á flestum stærri steinum og klettum. Hún vex eingöngu á grjóti. Hún er grá á litinn með reitskiptu þali. Gráskorpan hefur litlar, svartar askhirzlur sem rísa ekki upp úr þalinu, heldur eru í hæð við það eða eilítið niðurgrafnar. Gróin eru einhólfa, tiltölulega stór og þykkveggja miðað við flestar aðrar hrúðurfléttur. Gráskorpa líkist í útliti mjög náttskorpu, en er heldur ljósari á litinn, og gefur ætíð í fyrstu gula og síðan rauða svörun með KOH.

Myndirnar af gráskorpu voru teknar 28. maí 2009 á Náttúrufræðistofnun á Akureyri.

aspicine1f.jpg (368422 bytes)

aspicine2f.jpg (327722 bytes)