Skorpuætt

Náttskorpa

Hymeneliaceae

Náttskorpa (Aspicilia caesiocinerea) er dökkgrá hrúðurflétta með reitskiptu þali. Hún vex ætíð á steinum eða klöppum og er algeng um land allt. Askhirzlurnar eru smáar, svartar, hálfniðurgrafnar í þalið, oft með upphleyptum börmum. Náttskorpan líkist mjög gráskorpu í útliti, er þó oftast dekkri á litinn, og gefur neikvæða svörun með kalílút. Gráskorpan er þó mun algengari en náttskorpan.

Myndin af náttskorpu er tekin á Náttúrufræðistofnun á Akureyri þann 28. maí 2009.

aspiccae1f.jpg (325374 bytes)