Skorpuætt

Flúðaskorpa

Hymeneliaceae

Flúðaskorpa (Aspicilia aquatica) vex á klöppum nálægt vatnsborði, eða þar sem vatn leikur oft um klappirnar. Þalið er grátt á litinn og nokkuð slétt fyrir utan þær ójöfnur yfirborðsins sem myndast af askhirzlunum. Ekki er vel vitað um útbreiðslu tegundarinnar á landinu, nema hún er nokkuð algeng meðfram Lagarfljóti þar sem klappir liggja að fljótinu. 

Myndin er tekin í ágúst 2003 við flúðir Lagarfljóts við Lagarfoss.

aspicaqu1f.jpg (93989 bytes)