Ríluætt |
Setríla |
Arthoniaceae |
||
|
Setríla (Arthonia glebosa) er sjaldgæf flétta á Íslandi sem vex á malarkenndum setlögum eða á jarðvegi yfir klöppum. Hún hefur aðeins fundizt á örfáum stöðum, en mest er af henni í þéttum breiðum á setlögum meðfram Jökulsá á Brú innan við Kárahnjúka. Þar myndar hún ásamt öðrum tegundum skorpu í yfirborði setlaga úr jökulleir, og stuðlar þar með að því að festa yfirborðið og draga úr vindrofi. Setrílan myndar brúnleita bleðla og kúptar, svartar askhirzlur á yfirborði jarðvegsins. |
||||
|
Myndin er tekin á sethjöllum í botni fyrirhugaðs Hálslóns innan við Kárahnjúka 24. júlí 2002. |
||||
|
|
||||