Grasætt |
Ginhafri |
Poaceae |
||
|
Ginhafri (Arrhenatherum elatius) er stórvaxin grastegund með alllöngum, fremur grönnum, gulgrænum punti, og standa knébeygðar týtur út úr puntinum. Ginhafrinn er oft metri eða meira á hæð, og myndar þéttar breiður af flötum, og nokkuð breiðum blöðum. Ginhafrinn hefur vex aðeins á einum stað villtur á Íslandi, í bröttum brekkum undir fuglabjargi við Pétursey í Mýrdal. Ekki er ólíklegt að hann hafi borizt þangað með fuglum. |
||||
|
Myndin er tekin í Pétursey í Mýrdal 26. júní 2002. |
||||
![]() |
||||