Hjartagrasætt

Skeggsandi

Caryophyllaceae

Skeggsandi (Arenaria norvegica) er smávaxin jurt sem vex einkum í sandi og á melum.  Hann er algengur um allt land nema á norðanverðum Vestfjörðum. Skeggsandinn vex mest á láglendi og upp í 750 m hæð, en finnst einstöku sinnum miklu hærra. Hæstu skráðir fundarstaðir eru í 1200 m á háegg suðvesturaxlar Tungnafellsjökuls (Helgi Hallgrímsson) og í norðurhlíðum sama jökuls í 1050 m (H.Kr.).

Myndin fyrir miðju er tekin í Reykjavík árið 1982, en sú til hægri við Fossá í Hvalfirði 3. júní 2009.

arenanor1b.jpg (67470 bytes)

arenanor2b.jpg (316810 bytes)