Skottmosaætt

Hraukmosi

Leucodontaceae

Hraukmosi (Antitrichia curtipendula) vex einkum á þunnum jarðvegi ofan á klettum eða stórum steinum, einnig á melhryggjum og í urðum.  Hann er algengur við vesturströndina, undir Mýrdals- og Eyjafjallajökli, og við Suðausturströndina norður í Berufjörð. Hann er fágætur á Norðurlandi. Hraukmosinn myndar nokkrar breiður af jarðlægum, brúnleitum eða grænleitum, greinóttum renglum.

Myndin af hraukmosa er tekin í Gálgahrauni á Álftanesi 28. maí 1987.

antitcur1m.jpg (158807 bytes)