Körtuætt

Blikugláma

Porpidiaceae

Blikugláma (Amygdalaria pelobotryon) er nokkuð algeng flétta sem vex bæði á basalti og móbergi. Hún kann bezt við sig þar sem loftslagið er rakt, ekki sízt uppi á hálendinu. Kjörlendi hennar þar sem hún einnig er algengust virðist vera á sunnanverðu hálendi Íslands. Þalið er rjómahvítt á litinn, oft með örlítið bleikleitum blæ, reitskipt með kúptum reitum og svörtum askhirzlum sem eru niðurgrafnar í þalið. Grænþörungar eru í hvíta þalinu, en á milli þalreitanna eru brúnar hnyðlur með blágrænum þörungum.

Myndirnar eru teknar á Náttúrufræðistofnun á Akureyri þann 28. maí 2009. Sýnið til vinstri er frá Hlíðarmúla við Hlíðarvatn, en hitt er frá Þjórsárbökkum sunnan Skeiðháholts.

amygdpel1f.jpg (340761 bytes)

amygdpel2f.jpg (326970 bytes)