Körtuætt |
Hraufugláma |
Porpidiaceae |
||
|
Hraufugláma (Amygdalaria panaeola) er sjaldgæfust af glámunum. Hún þekkist helzt á því, að hún hefur oft engar askhirzlur, en myndar hraufur í staðinn sem eru eins og duftkennd útbrot á mjólkurhvítu þalinu. Eins og hinar glámurnar hefur hún ljósbrúnar hnyðlur með blágrænum þörungum. |
||||
|
Myndin er tekin á Náttúrufræðistofnun á Akureyri þann 28. maí 2009 af sýni sem tekið var uppi á fjallshrygg norðan Skuggafjalla á Skaftártungnaafrétti |
||||