Gráserkur eða öðru nafni fjallaskeiðsveppur
(Amanita vaginata) er til í nokkrum litarafbrigðum, sem stundum eru taldar
sjálfstæðar tegundir. Hvítt afbrigði er einna algengast til
fjalla (snæserkur), en bleikt
eða gullgult afbrigði er víða í lyngmóum og skógum norðanlands (gullserkur). Einnig eru til
blýgrá og gul afbrigði hér á landi. Gráserkurinn er talinn ætur, en
þarf suðu. Mörgum er illa við að neyta hans vegna þess hversu líkur hann er
hvíta váserknum (Amanita virosa) sem er baneitraður. Myndin sýnir
þrjú mismunandi þroskastig skeiðsveppsins, yngst er hvít kúla í miðju, síðan
nýútsprungið eintak til vinstri, og loks fullþroska sveppur til hægri. |