Serksætt

Berserkur

Amanitaceae

Berserkjasveppur eða Berserkur (Amanita muscaria) þroskast seint á haustin, venjulega seint í ágúst eða september.  Í sumum árum getur vaxið mjög mikið af honum í vissum landshlutum.  Hann er eitraður, og er því ekki hægt að mæla með honum til neyzlu. Hann vex einkum í birkiskógum eða í lyngmóum með fjalldrapa.  Fyrst þegar hann kemur upp úr jörðunni er hann hvít kúla, en þegar stafurinn og hatturinn vaxa springur hvíti hjúpurinn í sundur og myndar doppur á rauðum hattinum.

Myndin af berserkjasveppnum er tekin í Vaglaskógi 1. september 1987

amanimus1s.jpg (44931 bytes)