Grasætt

Vatnsliðagras

Poaceae

Vatnsliðagras (Alopecurus aequalis) er algengt um allt land frá láglendi upp í 650 m hæð og vex einkum þar sem blautt er, gjarnan úti í grunnum tjörnum og vötnum. Það myndar oft langa sprota með blöðum sem fljóta ofan á vatnsborðinu. Blöðin eru oftast móleit eða brúnleit á litinn, en ekki fagurgræn eins og er á brúsakollum sem oft mynda svipuð blöð á yfirborði grunnra vatna. Hæstu fundarstaðir vatnsliðagrass eru við Ásbjarnarvötn (777 m) og Bleikálupolla á Hofsafrétti (740 m) og í svipaðri hæð við Laufrandarhraun.

Myndin fyrir miðju er tekin í tjörn á Fljótsdalshéraði sumarið 1984. Blómstrandi öxin sjást standa upp úr vatnsborðinu, en blöðin fljóta. Myndin til hægri er tekin í Bolungarvík 16. júlí 2008.

alopeaeq1g.jpg (131702 bytes)

alopeaeq2g.jpg (117948 bytes)

Kortið sýnir þekkta úbreiðslu vatnsliðagrass á Íslandi