|
Villilaukur
(Allium oleraceum) var fluttur til landsins fyrir alllöngu
síðan og vex aðeins á fáum stöðum í túnum og við bæi. Hann ber
legglöng, hvítleit blóm sem standa allmörg saman í sveip, sem er
umlukinn tveim allbreiðum hulsturblöðum á meðan þau eru að
þroskast. Á milli blómanna myndast leggstuttir eða legglausir
æxlilaukar á haustin. Blöðin eru grasleit, með laukbragði. Villilaukurinn er
friðaður samkvæmt náttúruverndarlögum. |