Kræðuætt

Flókakræða

Alectoriaceae

Flókakræða (Alectoria sarmentosa) er flétta sem er allvíða um landið vestanvert, einkum við úthafsloftslag.  Hún er þó ætíð mjög strjál, vex helzt í smáflókum uppi á eða utan í hæðum og bungum.  Flókakræðan er gulhvít á litinn, með svörtum yrjum, greinarnar eru sumar hárkenndar en aðrar útflattar og nokkuð gildar. Hér fyrir neðan sést hún í gamburmosabreiðu utan í Spákonufelli á Skagaströnd. Flókakræðunni er skipt í tvær deilitegundir, ssp. vexillifera og ssp. sarmentosa. Sú síðarnefnda fannst ekki hér á landi fyrr en árið 2003, en hún vex á birkitrjám. Hún hefur fíngerðari greinar og sjaldan eins útflattar. 

Myndin er tekin á Spákonufellsborg á Skaga árið 1987