Kræðuætt |
Skollakræða |
Alectoriaceae |
||
Skollakræða (Alectoria ochroleuca) er runnkennd, ljósgul flétta sem er algeng einkum um norðanvert og austanvert landið. Myndar hún þar oft samfelldar, gular breiður á hæðum og hólum. Í Mývatnssveit er svo mikið af henni að hún setur verulegan svip á hæðir og hraunbungur. Skollakræðan hefur mjög landræna útbreiðslu á landinu, vex einkum inn til landsins á Norðausturlandi. Einnig finnst hún úti á Álftanesi og víðar í nágrenni Reykjavíkur. |
||||
Myndirnar eru teknar í Hrafnabjargatungu í Austur- Húnavatnssýslu, sú fyrir miðju árið 1988, en sú til hægri 24. júní 2010. |
||||
|
|
||||