Rósaætt

Hnoðamaríustakkur

Rosaceae

Hnoðamaríustakkur (Alchemilla glomerulans) er afar líkur hlíðamaríustakk í útliti, er þó að jafnaði heldur stærri, oft ljósgrænni á litinn, og hefur tilhneigingu til að vaxa heldur hærra til fjalla. Bezta greiningareinkennið er hæring blaðstilka og blómstöngla. Blaðstilkarnir eru greinilega aðhærðir, þ.e. hárin liggja upp að stilknum á hnoðamaríustakk (sést á myndinni að neðan ef hún er stækkuð með því að tvísmella á hana), en standa hornrétt út frá stilknum á hlíðamaríustakk. Silfurmaríustakkur hefur hins vegar einnig aðhærða blaðstilka, en hann er töluvert sjaldgæfari og fíngerðari. Hnoðamaríustakkur vex hærra til fjalla en aðrar tegundir maríustakks, hefur fundizt í 1000 m hæð á Þverárdalsbrúnum við Þorvaldsdal og Héðinsdalsbrúnum við Hjaltadal.

Clustered Lady's-mantle (Alchemilla glomerulans) is rather similar to the common Hairy Lady's-mantle, but usually larger, lighter green, with the tendency of growing higher towards the mountains. It is best distinguished by the appressed hairs on the petiole (seen when double-clicking the photo below), instead of vertical hairs on the Hairy Lady's-mantle. The Rock Lady's-mantle bears also appressed-haired petioles, but is much less common and more delicate. The Clustered Lady's-mantle is found at higher elevations than the other species. Highest locality at 1000 m in the mountains of Tröllaskagi west of Eyjafjörður.

Myndin af blaðstilk hnoðamaríustakks er tekin 23. júlí 2006 á Austari-Krókum á Flateyjardalsheiði, en myndin af blómum hans er tekin á Arnarhóli í Kaupangssveit í byrjun ágúst árið 2004..

alcheglo1b.jpg (66273 bytes)

AN-16749.jpg (42031 bytes)

Hnoðamaríustakkur er mun algengari en fram kemur á útbreiðslukortinu. Flestar skráningar maríustakks tilgreina ekki deilitegund, og eru því ónothæfar fyrir þetta kort sem byggir meira á safneintökum.