Varablómaætt |
Lyngbúi |
Lamiaceae |
||
Lyngbúi (Ajuga pyramidalis) er mjög sjaldgæf jurt sem aðeins finnst norðarlega á Austfjörðum á svæðinu frá Unaósi að Norðfirði, einkum í þeim hlíðum sem vita mót suðri. Ungir sprotar lyngbúans hafa sérkennilega ferstrenda pyramidalögun áður en þeir teygja úr sér. Hann vex einkum í lyngdældum, grasdældum eða grasbrekkum, stundum undir klettum. Hæsti fundarstaður lyngbúans er í 350-400 m undir Nípukolli í Norðfirði (Hjörleifur Guttormsson). Lyngbúinn er friðaður samkvæmt náttúruverndarlögum. |
||||
|
Pyramidal Bugle (Ajuga pyramidalis) is very rare, native plant, only known in the northernmost Eastern Fjords between Norðfjörður and Unaós. It prefers south facing slopes. The young shoots of the Pyramidal Bugle are characterized by quadrangular, pyramidal shape before they expand. It grows mainly in grassy slopes, often below cliffs, or in sheltered depressions in heathlands. The highest known locality is at 350-400 m below Nípukollur in Norðfjörður. The Pyramidal Bugle is protected by Icelandic law. |
||||
|
Myndin að ofan fyrir miðju er tekin í hlíðum Kerlingarfjalls, Njarðvík eystra þann 10. júlí árið 2008, en sú til hægri í Nesárgili í Loðmundarfirði í ágúst 2001. |
||||
|
|
||||