Grasætt

Hálíngresi

Poaceae

Hálíngresi (Agrostis capillaris) er í meðallagi hávaxið gras með fíngerðum, rauðleitum punti.  Það er gömul og rótgróin jurt í landinu, algeng hvarvetna um mólendi og lægri heiðar upp fyrir 500 m hæð. Það vex einkum í grasdældum, brekkum og kjarrlendi.  Það er einnig mikið ræktað í túnum. Hæstu fundarstaðir hálíngresis eru í 750 m hæð í botni Glerárdals við Eyjafjörð, og í 740 m í Hattveri á Landmannaafrétti og við Laufrandarhraun á Bárðdælaafrétti.

Common Bent (Agrostis capillaris) is rather tall grass with delicate, reddish-brown panicle. It is native to Iceland, common everywhere in sheltered habitats in heathland, in woodlands, and the lower slopes of the mountains. It is common up to more than 500 m, highest localities at 750 m. It is also cultivated in home fields. 

Myndin fyrir miðju er tekin í Reykjavík 23. júlí árið 1982, en sú til hægri er tekin á Arnarhóli í Kaupangssveit 12. ágúst 2006.

agroscap1g.jpg (30154 bytes)

agroscap2g.jpg (133830 bytes)