Körfublómaætt

Vallhumall

Asteraceae

Vallhumall (Achillea millefolium) er algengur við byggð ból í kringum allt landið.  Vallhumallinn hefur venjulega hvítar körfur, en oft eru þær nokkuð bleiklitar, sjaldnar nær rauðar eins og sést á einni myndinni hér að neðan. Í sumum landshlutum er vallhumallinn einkum í kringum bæi, og kemur því að nokkru leyti fram sem slæðingur sem gæti hafa borizt af manna völdum. Annars staðar, einkum á Norður- og Norðausturlandi er hann mjög rótgróinn í villtu landi og vex þar bæði upp til fjalla og inn á hálendið, á nokkrum stöðum upp fyrir 700 m hæð.  Hann er til dæmis mjög algengur víða um Ódáðahraun og hálendið þar í kring. Hæstu fundarstaðir vallhumals eru í 900 m hæð sunnan í Skessuhrygg austan Höfðahverfis við Eyjafjörð, og í 850 m hæð í Syðri-Hágangi við Vopnafjörð. Rauðir þríhyrningar á korti merkja staði þar sem vallhumallinn vex eingöngu við jarðhita.

Yarrow (Achillea millefolium) bears numerous small, usually white or pink flowerheads arranged in corymbs. Red flowerheads like shown below are rare. The plant appears to be native in the Northeast of Iceland, common from the lowland up to 700 m elevation in the highland and the mountains. It is especially common in the highlands around Ódáðahraun. In other parts of Iceland like in the West and South it appears to be introduced, growing mainly around farms and villages. The highest known locality is in 900 m. Red triangles on the map below are used for localities where it is found only on thermal soil.

AN-16752.jpg (48966 bytes)

achilmil3b.jpg (102314 bytes)

achilmil2b.jpg (104894 bytes)

Körfur vallhumalsins í návígi. 5 tungukrýnd blóm utan með og nokkur pípukrýnd í miðju hverrar körfu. Myndin er tekin 3. ágúst 2004.

Myndin af vallhumli hér að ofan er tekin 18. ágúst 2009.

Myndin af rauðum vallhumli er tekin á Arnarhóli í júlí 2009.